Eflingarfélagar halda áfram vettvangsferðum í fyrirtæki

25. 06, 2025
Þau Bella, Roymer, Alexis, Karla, Alexa, Bozena, MaryJane og Edison heimsækja vinnustaði í dag og kynna trúnaðarmannakerfi Eflingar.

Vettvangsfulltrúar Eflingar halda í dag út af örkinni og sækja heim vinnustaði. Í síðustu viku heimsóttu fulltrúar Eflingar fjölmarga vinnustaði þar sem rætt var við verkafólk, starfsemi Eflingar kynnt fyrir því og ekki síst trúnaðarmannakerfið.

Vettvangsheimsóknirnar nú eru liður í átaki Eflingar við að efla trúnaðarmannakerfi félagsins. Einkum er nú horft til þess að efla það kerfi í iðnaðargeiranum og endurspegla vinnustaðirnir sem eru heimsóttir þá áherslu. 

Í hópi vettvangsfulltrúa eru virkir félagsmenn í Eflingu, sem margir hverjir sitja í trúnaðarráði félagsins eða eru trúnaðarmenn á sínum vinnustöðum. Þeir eru því vel í stakk búnir til að miðla af reynslu sinni og þekkingu. 

Í meðfylgjandi frétt má fræðast nánar um trúnaðarmannakerfið, hlutverk trúnaðarmanna, trúnaðarmannakosningar og trúnaðarmannanámskeið Eflingar.