
Rannsóknafyrirtækið Prósent mun á næstu dögum senda félagsfólki Eflingar sem hafa erlent ríkisfang tölvupóst með hlekk á könnun um húsnæðisaðstæður þess. Markmið könnunarinnar er að afla gagna sem hægt verður að nýta til að bæta aðstæður innflytjenda varðandi húsnæðismál. Því er mjög mikils virði að sem flestir Eflingarfélagar taki þátt.
Innflytjendur standa höllum fæti
Þekkt er að innflytjendur á Íslandi standa mun verr að vígi á húsnæðismarkaði heldur en innfæddir. Það hafa kannanir Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins ítrekað sýnt. Í skýrslu Vörðu, Staða launafólks á Íslandi, sem kom út árið 2024 kom fram að að aðeins 29% innflytjenda búa í eigin húsnæði borið saman við 75% innfæddra Íslendinga og 58% Íslendinga af erlendum uppruna. Hins vegar búa 43% innflytjenda í leiguhúsnæði á almennum markaði á meðan að hlutfallið er tæp 10% hjá innfæddum Íslendingum og 14% hjá Íslendingum af erlendum uppruna. Þá búa 7% innflytjenda í leiguhúsnæði á vegum atvinnurekenda en það hlutfall er aðeins í kringum 1% bæði hjá innfæddum Íslendingum og Íslendingum af erlendum uppruna.
Byrði húsnæðiskostnaðar leggst líka mun þyngra á innflytjendur en aðra. Alls svöruðu 45% innflytjenda því til að byrði húsnæðiskostnaðar væri þung og 39% sögðu hana vera nokkuð þunga. Það er mun verri staða en innfæddir Íslendingar og Íslendingar af erlendum uppruna eru í. Alls sögðu 27% innfæddra að byrðin væri þung og 49% að hún væri nokkur. Sambærileg hlutföll hjá Íslendingum af erlendum uppruna 33% og 45%.
Þá er mun algengara að innflytjendur hafi skipt um húsnæði á síðustu fimm árum heldur en bæði innfæddir Íslendingar og Íslendingar af erlendum uppruna.
Mikilvæg gagnöflun
Þessar tölur sýna svart á hvítu hversu mun erfiðari stöðu innflytjendur eru í á húsnæðismarkaði en aðrir hópar. Því er afar mikilvægt að afla sem bestra og mestra gagna sem hægt er að nýta til að bregðast við og ráða bót á vandanum. Því eru Eflingarfélagar hvattir til að taka þátt í könnuninni.
Könnunin er samstarfsverkefni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og stéttarfélaganna Eflingar, Einingar-Iðju og VR. Um 4-5 mínútur tekur að svara könnuninni. Öll svör eru bundin trúnaði og ekki hægt að rekja þau til þátttakenda.