Fræðslusjóðir sem Efling hefur rekið ásamt opinberum aðilum hafa nú verið sameinaðir í einn nýjan sjóð. Með sameiningunni styrkist staða félagsmanna sem nýta sér styrki til náms, með því að styrkir hækka og jafnræði kemst á meðal allra félagsmanna Eflingar sem starfa á opinbera markaðnum.
Sjóðirnir voru þrír fyrir, Fræðslusjóður Eflingar og Reykjavíkurborgar; Fræðslusjóður Eflingar, Kópavogsbæjar og Seltjarnarness; og Flóamennt, sem var fræðslusjóður Eflingar, ríkisins og tengdra stofnanna. Nú er aðeins um einn sjóð að ræða, sem ber heitið Fræðslusjóður Eflingar og opinberra aðila. Eftir sem áður er fræðslusjóðurinn Starfsafl, sem félagsmenn á almenna markaðnum greiða til og eiga réttindi hjá, starfandi.
Samhliða því að opinberu sjóðirnir voru sameinaðir var tekin ákvörðun um að hækka hámarksstyrki til einstaklinga sem starfa á opinbera markaðnum um 20 þúsund krónur. Frá 1. júlí verður hámarksstyrkurinn 150 þúsund krónur. Þá er breytingar gerðar á því hvernig nýta má uppsafnaðan styrk. Þannig eiga þeir sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár rétt á styrk allt að 300 þúsund krónur og þeir sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn í þrjú ár eiga nú rétt á styrk að upphæð allt að 450 þúsund krónur. Áður var sú upphæð 390 þúsund krónur.