
Efling stéttarfélag óskar félagskonum sínum og öllum konum á landinu til hamingju með kvenréttindadaginn. Í dag, 19. júní, eru 110 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Árið 1920, með upptöku nýrrar stjórnarskrár, lækkuðu aldursmörkin í 25 ára aldur.
Kvenréttindadagurinn er hátíðisdagur, en ekki síst er hann baráttudagur. Staðan er sú að á íslenskum vinnumarkaði er fjarri því komið á jafnrétti meðal kynjanna. Þetta hafa Eflingarkonur reynt á eigin skinni.
Samkvæmt niðurstöðum úr könnunum Vörðu-Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins búa Eflingarkonur við hvað erfiðasta stöðu á íslenskum vinnumarkaði. Stór hluti þeirra á erfitt með að ná endum saman, andleg heilsa um helmings þeirra er slök og yfir helmingur þeirra stefnir í kulnun.
Við þetta verður ekki búið. Eflingarkonur, og aðrar verkakonur, halda íslensku samfélagi gangandi. Það eru þær sem knýja áfram hjól atvinnulífsins, sem sinna börnum, öldruðum og sjúkum. Þær eiga skilið virðingu og mannsæmandi kjör, og þær eiga skilið að verða metnar að verðleikum. Sú er krafa Eflingar á kvenréttindadaginn, sem og alla aðra daga.
Gleðilegan kvenréttindadag.