Þessa dagana stendur yfir könnun á stöðu launafólks á Íslandi, þar sem aflað er upplýsinga um stöðu mála á íslenskum vinnumarkaði. Eflingarfélagar eru eindregið hvattir til að taka þátt í könnuninni. Þátttakendur komast í pott sem þrír sigurvegarar verða dregnir úr og hljóta þeir vegleg verðlaun.
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggu könnunina fyrir og er þetta fimmta árið í röð sem það er gert. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, ekki síst varðandi fjárhagsstöðu og heilsu. Þess vegna er mjög mikilvægt að sem flestir taki þátt í könnuninni, þannig fást sem nákvæmastar upplýsingar um stöðu launafólks á Íslandi. Með þeim upplýsingum fáum við enn betri tæki í hendurnar til að berjast fyrir bættum kjörum ykkar Eflingarfólks.
Það tekur aðeins um 15 mínútur að svara könnuninni og ekki er hægt að rekja svör til einstaklinga. Spurt er um fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar og stöðu á húsnæðismarkaði.
- Könnunin stendur til 27. júlí. Hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða tölvu.
- Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
- Þrír þátttakendur vinna 40.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna.
- Könnunin er ópersónurekjanleg. Happdrætti sem þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í er á öðrum hlekk og ekki hægt að rekja saman svör í könnuninni við þátttöku í happdrættinu.