Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur lagt dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT, sem nema einni milljón króna á dag. Er það gert vegna þess að SVEIT hafa neitað að afhenda SKE gögn vegna rannsóknar þess á ólögmætu verðsamráði fyrirtækja á veitingamarkaði með gerð einhliða kjarasamnings SVEIT við gervistéttarfélagið Virðingu.
SKE hóf formlega rannsókn sína í kjölfar kvörtunar Eflingar stéttarfélags, Starfsgreinasambands Íslands og Alþýðusambands Íslands, sem SKE var send 14. mars síðastliðinn. Í kvörtuninni var athygli SKE vakin á því að Virðing væri ekki raunverulegt stéttarfélag heldur gervifélag stofnað af atvinnurekendum í veitingageiranum í þeim tilgangi að lækka laun starfsfólk og draga úr réttindum þess. Sökum þess gæti kjarasamningur milli þessara aðila ekki talist raunverulegur heldur væri um að ræða ólögmætt samráð keppinauta á markaði.
SKE sendi 31. mars erindi á SVEIT, Virðingu og tvö aðildarfyrirtæki SVEIT þar sem gagna um stofnun Virðingar og gerð samnings þess við SVEIT var krafist. Í erindinu var jafnframt rakið að sektir vegna ólögmæts samráðs gætu numið allt að 10% af heildarveltu viðkomandi fyrirtækja og þá gæti stjórnendur átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist.
Virðing og aðildarfyrirtæki SVEIT sem krafin voru um gögn, Skúli Craft Bar og ROK Restaurant, hafa brugðist við kröfu SKE og afhent eftirlitinu gögn. SVEIT hefur hins vegar, ítrekað, hafnað kröfu SKE um að afhenda umrædd gögn, og krefjast þess að rannsókn eftirlitsins verði felld niður.
Alvarleg brot og til þess fallin að valda tjóni
SKE hefur því tekið ákvörðun um að dagsektir verði lagðar á SVEIT þar til samtökin láta af lögbrotum sínum og afhenda umboðin gögn. Bendir SKE á að uppfylli svokallaður kjarasamningur SVEIT og Virðingar ekki skilyrði samkeppnisréttar geti hann falið í sér ólögmætt samráð um laun launþega.
„Slík brot fara gegn 10. gr. samkeppnislaga, sbr. 12. gr. laganna, og teljast að jafnaði alvarleg og til þess fallin að valda tjóni. Rannsókn samkeppnisyfirvalda í málum af þessum toga felst m.a. í því að leggja mat á hvort um raunverulegan kjarasamning sé að ræða eða ekki. Ákvæði 19. gr. samkeppnislaga veita Samkeppniseftirlitinu ríkar heimildir til þess að kalla eftir öllum nauðsynlegum gögnum í þágu rannsóknar málsins,“ segir í ákvörðun SKE.
Í því ljósi er það niðurstaða SKE „að SVEIT hafi vanrækt ótvíræða lagaskyldu um afhendingu gagna og brotið þar með gegn 19. gr. samkeppnislaga. Skal SVEIT greiða dagsektir að fjárhæð 1.000.000 kr. á dag þar til umbeðin gögn hafa verið afhent Samkeppniseftirlitinu“.