Styttur opnunartími skrifstofu Eflingar í sumar

Opnunartími skrifstofu Eflingar stéttarfélags styttist tímabundið í sumar.

Opnunartími verður 10:00 – 13:00 alla virka daga frá og með mánudeginum 07. júlí til og með föstudagins 01. ágúst.

Á sá opnunartími bæði við þá sem þurfa að sækja sér þjónustu á skrifstofuna sjálfa, sem og þá sem þurfa að hafa samband símleiðis. Þá er félagsfólk jafnframt hvatt til að nýta mínar síður eða senda tölvupóst með erindum sínum en þeim verður svarað við fyrsta tækifæri.

Reynslan hefur sýnt að á þessum tíma árs er eftirspurn eftir þjónustu skrifstofu Eflingar jafnan hvað minnstur yfir árið og hyggst starfsfólk því nýta þann aukna tíma sem gefst með skemmri opnunartíma til að undirbúa þjónustu við félagsfólk næsta vetur með ýmsum hætti.