Trúnaðaráð samþykkir tillögu uppstillingarnefndar um skipun í stjórn Eflingar

19. 01, 2026

Trúnaðarráð Eflingar stéttarfélags samþykkti á fundi sínum 15. janúar tillögu uppstillingarnefndar félagsins um skipun í stjórn félagsins fyrir kjörtímabilið 2026 til 2028, sem nú er til kjörs skv. 10. gr. laga Eflingar.  

Um er að ræða formann félagsins og gjaldkera, ásamt sex meðstjórnendum. Þá er einnig gerð tillaga um skipun tveggja skoðunarmanna reikninga ásamt einum varamanni.

Listi trúnaðarráðs og uppstillingarnefndar er eftirfarandi:

Formaður: Sólveig Anna Jónsdóttir

Gjaldkeri: Michael Bragi Whalley

Meðstjórnendur:

Greta Íris Karlsdóttir

Hjördís Bech Ásgeirsdóttir

Hlynur Gauti Ómarsson

Mary Jane Gonzales Munoz

Rögnvaldur Ómar Reynisson

Sæþór Benjamín Randalsson

Skoðunarmenn reikninga:

Aðalmenn:

Bozena Bronislawa Raczkowska

Valtýr Björn Thors

Varamaður:

Jóhannes Sævar Soffíuson

Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12:00 mánudaginn 26. janúar. Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.