
„Barátta starfsfólks hjá Emeis, stærsta einkarekna aðilanum í langtímaumönnun í Póllandi, sýnir okkur með skýrum hætti hversu miklu skipulögð stéttarfélagsbarátta getur skilað, jafnvel við erfiðar aðstæður og harða mótsstöðu atvinnurekenda,“ sagði Anna Bacia, formaður stéttarfélags umönnunarstarfsfólks í Póllandi, OPZZ-KP, á Eflingarþingi í dag.
OPZZ-KP var stofnað í lok árs 2018 og einkenndust fyrstu árin einkenndust af átökum og kerfisbundinni mótspyrnu atvinnurekenda, að því er Anna lýsti. Baráttan verkafólks var þó akki einangruð, heldur naut stuðnings alþjóðlegu verkalýðshreyfingarinnar og stuðnings frá sjúklingum og aðstandendum þeirra, meðal annars í gegnum undirskriftasafnanir og mótmæli fyrir utan hjúkrunarheimili.
Baráttan skilar árangri þrátt fyrir mótspyrnu
Sjálf var Anna rekin úr starfi árið 2019, eftir að hún tók að sér stöðu trúnaðarmanns á Emeis, enn eitt dæmið um harða mótstöðu fyrirtækisins gegn verkalýðsfélaginu og tilraunum starfsfólks til að tryggja eigin réttindi. Hún lýsti því að hafa, sem betur fer, notið mikils stuðnings; mótmæli voru haldin fyrir utan hjúkrunarheimili og víðar, auk þess sem Uni Global Union studdi hana vel.
„Á tveggja ára tímabili þurfti OPZZ-KP að starfa nánast „neðanjarðar“, við mjög erfiðar aðstæður. Félagsfólk okkar þorði þannig ekki að taka við stöðu trúnaðarmanna af ótta við að missa vinnuna. En árið 2021 breyttist staðan þegar ég fékk starf mitt aftur með dómsúrskurði. Þannig hófst nýr kafli í baráttunni,“ sagði hún.
„Árið 2022 var undirritað samstarfssamkomulag og formlegar viðræður hófust við fyrirtækið. Samhliða því jókst styrkur félagsins, bæði í fjölda og áhrifum. Félagsfólk skipulagði sameiginlegar aðgerðir, safnaði gögnum og kröfum og byggði upp þrýsting með markvissum hætti,“ bætti hún við.
Skýrar kröfur um bætt kjör
Í mars 2025 hófst formleg kjaradeila með skýrum kröfum, sem Anna Bacia nefndi sérstaklega:
- Launahækkanir fyrir starfsfólk utan heilbrigðisstétta
- Starfsaldurstengdar greiðslur
- Bónusa og viðbótargreiðslur
- Viðurkenningu og bætt stöðu umönnunarstarfsfólks
„Þessar kröfur endurspegla raunveruleikann sem starfsfólk í umönnunargeiranum býr við, þar sem laun eru lág og álag mikið,“ sagði hún.
Anna Bacia lagði áherslu á að baráttan hefði þróast úr varnarbaráttu yfir í sýnilega og opinbera hreyfingu. „Starfsfólk hefur stigið fram undir nafni og andliti, meðal annars á samfélagsmiðlum, og gert kröfur sínar sýnilegar.“
Þrátt fyrir þetta lauk sáttameðferð í febrúar 2026 með ágreiningsyfirlýsingu. Næsta skref til umræðu er verkfall. Hún spyr: „Er starfsfólkið tilbúið að grípa til verkfalls til að knýja fram réttlæti?“
Samstaða á landsvísu lykilatriði
Baráttan hefur einnig víkkað út. Stærstu stéttarfélagssambönd Póllands hafa myndað samstöðu og unnið að tillögu um kjarasamning fyrir allan umönnunargeirann.
„Þessi vinna hefur þegar skilað árangri, meðal annars í auknu samtali við stjórnvöld og sameiginlegri stefnumótun stéttarfélaga í opinbera og einkarekna geiranum,“ sagði Anna Bacia.
Skýr lærdómur fyrir Ísland
„Reynslan frá Póllandi sýnir að árangur næst ekki án átaka. Hann krefst skipulags, þrautseigju og samstöðu. Hún sýnir líka að jafnvel í erfiðu umhverfi er hægt að byggja upp sterka verkalýðshreyfingu sem knýr fram breytingar,“ sagði hún og bætti við:
„Fyrir íslenskan vinnumarkað er þetta áminning um mikilvægi þess að standa vörð um réttindi verkafólks, sérstaklega í greinum þar sem viðkvæmir hópar starfa og hætta á misnotkun er til staðar. Þegar atvinnurekendur neita að semja og virða kröfur starfsfólks, verður verkafólk að vera tilbúið að beita sterkustu vopnum sínum.“
„Baráttan við Emeis í Póllandi er langt frá því að vera lokið, en hún hefur þegar sýnt að samstaða skiptir sköpum og að breytingar koma aðeins þegar þrýstingur er nægur,“ sagði Anna Bacia að lokum.
Eflingarfélagar einnig verið reknir fyrir kjarbaráttu
Í umræðum eftir erindi Önnu greindi Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, frá því að Eflingarfélagar hefðu einnig verið reknir úr vinnu vegna þátttöku sinnar í verkalýðsbaráttu, og að slíkir félagar væru meðal annars í salnum í dag. Hún lýsti því einnig að Efling væri boðið og búið að aðstoða Önnu og OPZZ-KP í þeirra baráttu.
Spurð hvort stéttarfélagið hefði fengið einhvern stuðning frá pólskum stjórnvöldum í baráttu sinni sagði Anna Bacia svo ekki vera: „Við verðum að berjast fyrir öllum okkar réttindum og kjarabótum sjálf.“