Bráðamóttökunni blæðir út – Starfsfólk krefst tafarlausra aðgerða

12. 02, 2026

Öryggi starfsfólks og sjúklinga á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi er stefnt í hættu á degi hverjum. Ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Starfsfólk og sjúklingar eru því í aðstæðum þar sem hætta á smitum, slysum, ofbeldi og öðrum alvarlegum atvikum eru augljós og viðvarandi. Þessi staða hefur verið ljós um árabil en verið hunsuð af heilbrigðisyfirvöldum. Bregðast verður við nú þegar, að öðrum kosti verða afleiðingarnar af áður óþekktum og hörmulegum skala.

Þetta er meðal þess sem kom fram á sameiginlegum fundi stéttarfélaga starfsfólks bráðamóttökunnar sem haldinn var miðvikudaginn 11. febrúar. Að fundinum stóðu Efling stéttarfélag, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki. Gríðarlegt fjölmenni var á fundinum, um 180 manns, og þungt í fólki hljóðið.

Á fundinum lýsti starfsfólk bráðamóttökunnar aðstæðum þar með þeim hætti að engum sem á hlýddi ætti að blandast hugur um að neyðarástand ríki þar. Viðbragðsgeta deildarinnar er lömuð vegna mikils fjölda innlagðra sjúklinga þar, sem ættu að vera fluttir á viðeigandi legudeildir á spítalanum. Starfsfólk lýsti þreytu, angist, sorg og reiði yfir aðstæðunum, en jafnframt stolti, samheldni, og vilja til að fá að sinna vinnu sinni við mannsæmandi aðstæður. Krafan er að þar til bær yfirvöld bregðist þegar við áður fram komnum upplýsingum um ástandið og geri þegar í stað úrbætur, í þágu starfsfólks, sjúklinga, aðstandenda og samfélagsins alls.

Fundurinn samþykkti samhljóða, með kröftugu lófataki ályktun þar sem stöðunni var lýst og kröfur um aðgerðir voru settar fram. Ályktunina má lesa hér að neðan. 

ÁLYKTUN FUNDAR STARFSFÓLKS BRÁÐAMÓTTÖKU LANDSPÍTALA

11. febrúar 2026

Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu. Þetta hefur lengi verið opinbert og viðurkennt af stjórnendum spítalans, embætti landlæknis og heilbrigðisyfirvöldum, án þess að brugðist hafi verið við með fullnægjandi hætti. 

Daglegur fjöldi innlagðra sjúklinga er langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Afleiðingin er sú að hvorki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks, fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en heilt ár án þess að heilbrigðisyfirvöld hafi brugðist við. Aðgerðaleysið endurspeglar það úrræðaleysi og þau lausatök sem Ríkisendurskoðun hefur bent á. 

Landlæknir staðfesti í minnisblaði 2. júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar og að hvorki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga né gæði þjónustu. Landlæknir sagði á þeim tíma að í raun væri réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna, en viðurkenndi jafnframt að það væri ekki raunhæfur kostur þar eð deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu. 

Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað. 

Yfir 100 sjúklingar eru að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36. Einangrun er ómöguleg, órólegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu. Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar.

Bráðamóttakan hefur í lengri tíma verið að sinna innlögðum sjúklingum sem eiga að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Það er ekki hlutverk bráðamóttökunnar að reka tvöfalda legudeild ofan á bráðaþjónustu. Það lamar viðbragðsgetu bráðamóttökunnar og hindrar starfsfólk í að fá næði og frið til að sinna lögbundnu starfi sínu í móttöku og meðferð slasaðra og bráðveikra.

Starfsfólk neyðist til að starfa við aðstæður sem ganga gegn faglegri þekkingu þess og viðurkenndum viðmiðum um góða og örugga heilbrigðisþjónustu. Slíkt ástand er óverjandi og hefur varanleg og neikvæð áhrif á starfsfólk og gæði þjónustu. 

Starfsfólk og sjúklingar eru sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum er augljós og viðvarandi.  

Í desember greindust átta starfsmenn með leynda berkla. Þetta undirstrikar afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður eru ekki í samræmi við lög og reglur. Aðgerðaleysi í uppbyggingu og fjárfestingu í heilbrigðisinnviðum hefur skapað kerfisbundinn vanda sem nú birtist með skýrum og hættulegum hætti á bráðamóttökunni. 

Við krefjumst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda ríkir viðvarandi og versnandi neyðarástand og við því verður að bregðast nú þegar.

Við krefjumst þess jafnframt að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðum sem áður hafa komið fram:

  • Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar.
  • Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum. 
  • Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna. 
  • Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla. 
  • Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga. 
  • Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.

Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður. Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Í stað loforða gerum við kröfu um úrbætur. Þeir sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu verða að axla ábyrgð og beita völdum sínum strax.

Ályktun send til: 


Embættis landlæknis 
Vinnueftirlits 
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Persónuverndar 
Forstjóra Landspítala 
Heilbrigðisráðuneytis 

Fjármálaráðuneytis 

Forsætisráðuneytis 

Velferðarnefndar Alþingis 

Fjárlaganefndar Alþingis 

Afrit: Fjölmiðlar