Efling auglýsir eftir starfsfólki í ræstingar

13. 02, 2026

Efling stéttarfélag óskar eftir vandvirkum og áreiðanlegum starfsmanni í ræstingar á húsnæði félagsins að Guðrúnartúni 1 í Reykjavík. Starfshlutfall er samningsatriði.

Leitað er að einstaklingi sem vill taka þátt í að byggja upp góðan vinnustað þar sem metnaður er lagður í að skapa góðar vinnuaðstæður.

Helstu verkefni og ábyrgð

Dagleg þrif á skrifstofurýmum, fundarherbergjum og sameiginlegum rýmum

Umhirða salerna og eldhústækja

Aðstoð við önnur tilfallandi þrif og tiltekt á skrifstofunni

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af ræstingum er skilyrði

Samskiptafærni og fagmennska í vinnubrögðum

Tungumálakunnátta: íslenska og/eða enska

Umsóknir ásamt ferilskráð og meðmælum sendist á netfangið magda@efling.is. Umsóknarfrestur er til 27. mars 2026.