Á tímamótum – starfslokanámskeið

Réttindi

Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að sækja námskeið Eflingar þar sem farið er yfir hagnýtar upplýsingar varðandi tímamótin. Að hætta á vinnumarkaði þarf að undirbúa vel. Breytingin hefur mikil áhrif á líf fólks og er stórt skref að stíga. Með góðum undirbúningi er hægt að gera nýja hlutverkið í lífinu jákvætt.

Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar til að mynda um sjúkratryggingar, lífeyrisréttindi, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu og svara fyrirspurningum frá þátttakendum. Einnig verður fjallað um hvað er í boði í félagsstarfi og fræðslu fyrir fólk sem er komið á aldur.

Boðið er upp námskeiðið á íslensku, ensku og pólsku.

Íslenska: 19. nóvember 2025 kl. 9.00-15.00
Íslenska: 14.-15. apríl 2026 kl. 18.00-21.00
Enska: 21. apríl 2026 kl. 18.00-21.00
Pólska: 22. apríl 2026 kl. 18.21.00

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Mími.

Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Til að skrá sig á námskeiðið smellið þið á þá dagsetningu sem hentar ykkur hér fyrir neðan og fyllið svo út skráningareyðublað.

Námskeið á dagskrá

Á tímamótum – starfslokanámskeið (pólska)

— Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

22. apríl, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að …

22. apr arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (enska)

— Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

21. apríl, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að …

21. apr arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (íslenska, apríl)

— Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

14. og 15. apríl 2026, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér …

14. apr arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (íslenska, nóv)

— Mímir, Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

19. nóvember 2025, kl. 09.00-15.00 Ath! Kennsla fer fram í húsnæði Mímis, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. …

19. nóv arrow_forward