Reiknivélar

Reiknivélar Eflingar eru hagnýt tól, ætluð félagsfólki til að reikna út hver laun þess eiga að vera samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Reiknivélarnar taka mið af öllum þeim þáttum sem launagreiðslur byggja á. Reiknivélarnar eru afar einfaldar í notkun en á sama tíma nákvæmar. 

Með því að nota reiknivélar Eflingar getur félagsfólk tryggt að atvinnurekendur virði réttindi þess. Þær gera félagsfólki mun auðveldara að sannreyna launaseðla sína og fullvissa sig um að greitt sé í samræmi við kjarasamninga.

Efling hvetur félagsfólk til að nýta sér reiknivélarnar og styrkja þannig stöðu sína á vinnumarkaði.