Starfsafl, Landsmennt, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og SV fylgja samningi um flutning réttinda félagsmanna milli fræðslusjóðanna. Samningnum er ætlað að tryggja sanngjarnan flutning réttinda milli sjóða. Félagsmanni sem skiptir um stéttarfélag gefst kostur á að sækja um flutning réttinda frá sínum gamla fræðslusjóði/starfsmenntasjóði til þess nýja.
Yfirlit um greidd félagsgjöld eru send til hins nýja sjóðs/stéttarfélags sem reiknar réttindi félagsmannsins samkvæmt þeim reglum sem það félag vinnur eftir.
Ef styrkir hafa verið nýttir frá fyrri sjóði á almanaksárinu dragast þeir frá rétti í þeim nýja. Hafi enginn styrkur verið greiddur sl. 36 mánuði í félagasögu viðkomandi þá á hann þess kost að sækja um uppsafnaðan styrk í sínum nýja sjóði.
Óska þarf eftir flutningi innan 12 mánaða eftir að greiðslur byrja að berast í nýtt félag.
Ekki er hægt að sækja um styrk hjá nýjum sjóði ef reikningur er eldri en 12 mánaða eða gefinn út áður en umsækjandi byrjar að greiða til hins félagsins.
Umsóknareyðublað fyrir flutning á réttindum milli starfsmenntasjóða má finna hér.