Félagsfólki Eflingar stendur til boða að kaupa afsláttarmiða hjá Icelandair sem gildir sem inneign að upphæð 30.000 kr. við pöntun á þjónustu hjá þeim. Miðinn kostar 20.000 kr. til félagsfólks svo að sparnaður er töluverður fyrir þá sem geta nýtt sér þessa miða. Gjafabréfin eru seld í gegnum Mínar Síður.
Gildistími miðanna er fimm ár. Efling er endursöluaðili gjafabréfa og er gildistími þeirra frá kaupum Eflingar á gjafabréfum. Hægt er að fá nánari upplýsingar um gildistíma á vef Icelandair.
A.T.H. Ekki er hægt að skila gjafabréfum eftir að gengið hefur verið frá kaupum.
Eftir sameiningu Air Iceland Connect og Icelandair undir merkjum Icelandair gilda nú gjafabréfin bæði innanlands og utanlands, sjá nánari skilmála hér.
Þegar áætlunarflug er keypt hjá Icelandair slær félagsmaður inn kóða gjafabréfs við pöntun á vefnum og lækkar heildarverðið þá um 30.000.- kr.
10 punktar fara af punktainneign félagsmanns við kaup á afsláttarmiðanum frá Icelandair.
Hver félagsmaður getur keypt tvo miða á almanaksári.
Réttindi til styrkja / endurgreiðslna úr orlofssjóð byggist á eftirfarandi réttindum:
- Félagsfólk hafi greitt sl. 6 mán. samfellt og eigi punktainneign sem er til frádráttar hverju sinni.
- Félagsfólk sem er komið á lífeyri eða örorku geta keypt allt sem tilheyrir miðasölu í 6 ár eftir starfslok svo lengi sem tiltekinn punktafjöldi er til staðar, (hvort sem kemur á undan.)