Jafnlaunavottun
Efling hlaut þann 10. mars 2023 jafnlaunavottun frá BSI á Íslandi á Jafnlaunastaðalinn ÍST 85 sem var staðfest af Jafnréttisstofu þann 15. mars 2023. Jafnlaunavottunin staðfestir að komið hafi verið upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun. Markmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Jafnlaunavottunin er í gildi frá 2023-2026.
Jafnréttisáætlun Eflingar 2022 – 2025
Markmið jafnréttisáætlunar Eflingar stéttarfélags er að tryggja jafnrétti kynjanna og að allir hafi jöfn tækifæri til að nýta starfskrafta sína óháð kyni. Mikilvægt er að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað um mikilvægi jafnréttis í daglegum störfum, í stefnumótun og í allri ákvarðanatöku. Starfsfólk Eflingar ber sameiginlega ábyrgð á að gæta að jafnrétti.
Jafnréttisáætlunin byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Jafnréttisáætlun Eflingar stéttarfélags gildir fyrir allt starfsfólk og miðar að því að Efling sé
eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði ríki. Jafnréttisáætlun er kynnt
almenningi á heimasíðu Eflingar.
Launajafnrétti
Starfsfólk Eflingar nýtur sömu kjara fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf, sbr. 6. gr jafnréttislaga.
Þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðunum fela ekki í sér kynjamismunun.
Markmið jafnlaunakerfis | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Að enginn óútskýrður launamunur sé til staðar | Framfylgja markmiðum jafnlaunastefnu og viðhalda jafnlaunavottun skv. jafnlaunastaðli ÍST85:2012. | Framkvæmdarstjóri og rekstrarstjóri. | Árlega fyrir aðalfund |
Gera tölfræðilega úttekt og greiningu á kynbundnum mun á launum og öðrum kjörum starfsfólks. Kynna niðurstöður fyrir starfsfólki. | Framkvæmdarstjóri og rekstrarstjóri. | Árlega fyrir aðalfund | |
Leiði úttekt í ljós kynbundinn mun á launum eða öðrum kjörum kynnir yfirstjórn aðgerðir til útbóta. | Framkvæmdarstjóri og rekstrarstjóri. | Innan 3 mánaða ef munur er meiri en 3%, annars innan árs. |
Ráðningar, þjálfun og fræðsla
Laus störf hjá Eflingu skulu standa jafnt körlum, konum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í
þjóðskrá, sbr. 1.mgr. 12.gr. jafnréttislaga.
Stjórnendur vinna markvisst að því að hlutfall kynja sé sem jafnast innan starfshópa og starfseininga.
Jafnréttissjónarmið eru metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við ráðningar og
stöðuveitingar. Tryggja skal að allir standi jafnfætis er varðar framgang í starfi, þjálfun, fræðslu og
verkefnaúthlutun.
Markmið jafnlaunakerfis | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Kynjablandaður vinnustaður. | Öll störf eru ókyngreind í auglýsingum og öll kyn hvött til að sækja um. Ef tveir jafnhæfir umsækjendur sækja um stöðu skal að jafnaði sá ganga fyrir sem er af því kyni sem er í minnihluta í því starfi. | Rekstrarstjóri og framkvæmdarstjóri. | Þegar störf eru laus, við gerð auglýsinga og þegar ráðning fer fram. |
Að stuðla að fjölbreytileika á vinnustað. | Að ráða inn starfsfólk með þekkingu á erlendum tungumálum og menningarsamfélögum. | Rekstrarstjóri og framkvæmdarstjóri. | Þegar störf eru laus og þegar ráðning fer fram. |
Jöfn tækifæri til þjálfunar og fræðslu. | Halda kyngreint yfirlit yfir þátttöku starfsfólks í námskeiðum, ráðstefnum og annarri endurmenntun. Niðurstöður eru kynntar öllu starfsfólki. | Yfirstjórn og stjórnendur. | Árlega fyrir aðalfund. |
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Starfsfólki er gert kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni, sbr.
13.gr. jafnréttislaga, svo sem með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri
vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið og þörf er á. Starfsfólk skal njóta sveigjanleika til að
sinna fjölskyldu sinni.
Öllum skal gert auðvelt fyrir að koma til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða úr leyfi frá vinnu
vegna óviðráðanlegra brýnna fjölskylduaðstæðna. Að auki skulu slíkar aðstæður ekki hafa neikvæð
áhrif á ákvarðanir um framgang viðkomandi í starfi.
Markmið jafnlaunakerfis | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs. | Kynna fyrir starfsfólki skipulag vinnutímans og þann skipulagða sveigjanleika sem er í boði. | Sviðsstjórar. | Kynnt við ráðningu starfsfólks. Starfsfólk og sviðsstjórar hafa aðgang að Tímon – tímastjórnunarkerfi. Farið er yfir tímaskráningar í lok hvers mánaðar og þær staðfestar. |
Foreldravænt starfsumhverfi | Allir eru hvattir til að nýta sér þann rétt sem þau eiga til fæðingarog foreldraorlofs og leyfi vegna veikinda barna. | Sviðsstjórar og rekstrarstjóri. | Samtal tekið þegar tilvik koma upp. |
Halda yfirvinnu starfsfólks innan hóflegra marka og uppræta kynbundinn mun þar á. | Halda kyngreint yfirlit um fjölda yfirvinnustunda og niðurstöður kynntar öllu starfsfólki. Að bregðast við með endurskipulagningu verkefna eða annarri vinnuhagræðingu ef þörf er á. | Framkvæmdarstjóri og rekstrarstjóri. | Fyrir aðalfund árlega. |
Einelti, kynbundin áreiti, kynferðisleg áreitni og kynbundið ofbeldi
Sviðsstjórum og stjórnendum ber skylda að skapa vinnuskilyrði sem líða ekki einelti, kynbundið
ofbeldi, kynbundna eða kynferðislega áreitni á vinnustaðnum. Þeim ber skylda að taka á málum og
fylgja stefnu og verklagi Eflingar. Ábendingar og kvartanir þess efnis ber að taka alvarlega og skoða til
hlítar.
Allt starfsfólk á rétt á að það sé komið fram við það af virðingu. Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin
eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin. Telji starfsmaður sig verða fyrir framangreindu skal hann
samstundis snúa sér til síns næsta yfirmanns, rekstrarstjóra eða framkvæmdarstjóra og ber þeim
skylda til að vinna eftir útgefnu verklagi. Sama gildir ef starfsmaður hefur vitneskju um grun um slíkt
athæfi gagnvart samstarfsfólki sínu.
Aðgerðaráætlun EKKO á að tryggja heilbrigt og öruggt starfsumhverfi með samskiptasáttmála
starfsfólks að leiðarljósi. Áætlunin nær yfir samskipti starfsfólks Eflingar stéttarfélags og annarra sem
það á í samskiptum við í tengslum við starf sitt. Skipulagðir viðburðir eða samfundir utan
vinnustaðarins falla einnig hér undir.
Það er á ábyrgð stjórnenda og starfsfólks að fyrirbyggja og bregðast við slíkri hegðun og
aðgerðaráætlun er sett í samræmi við reglugerð nr. 1009/2015 og jafnréttisáætlun Eflingar
stéttarfélags.
Forvarnir eru á höndum stjórnenda og starfsfólks og ber þeim að skapa jákvæða menningu á
vinnustaðnum, þar sem fólki líður vel og gagnkvæm virðing ríkir og hvatt er til opinna samskipta og
uppbyggilegrar gagnrýni. Brugðist skal eins fljótt við og auðið er við vandamálum, árekstrum og
samskiptaörðugleikum á vinnustaðnum. Stjórnendum er boðin þjálfun í því að leysa
samskiptavandamál.
Starfsfólki skal gert ljóst að einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi sé óheimilt og að
öllum beri skylda að vinna gegn slíkri háttsemi. Öllu starfsfólki skal kynnt áætlun um aðgerðir gegn
EKKO. Áætlunin skal reglulega rifjuð upp á starfsmannafundum.
Framkvæmdastjóri tryggir að reglulega fari fram áhættumat á vinnustaðnum um aðgerðir gegn EKKO
skv. 4.gr. reglugerðar nr. 1009/2015. Einnig að gerð sé áætlun um heilsuvernd og forvarnir í
samræmi við niðurstöður matsins, einnig að endurmat fari fram að loknum úrbótum.
Skilgreiningar | |
Einelti | Einelti er síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir. |
Einelti á vinnustað | Tíðar og neikvæðar athafnir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn samstarfsmanni sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir eineltinu verður, mikilli vanlíðan og þær grafa undan sjálfstrausti hans. |
Kynbundið ofbeldi | Ofbeldi á grundvelli kyns sem leiðir til eða gæti leitt til líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir því verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi. |
Kynbundin áreitni | Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi. |
Kynferðisleg áreitni | Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg. |
Ofbeldi | Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis. |
Þolandi | Sá sem telur sig verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilegri háttsemi. |
Gerandi | Sá sem kvörtun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilega háttsemi beinist að. |
Eftirfylgni og endurskoðun
Jafnréttisáætlun er gerð til þriggja ára í senn. Ári áður en jafnréttisáætlun fellur úr gildi skal hefja
endurskoðun með það að markmiði að ný áætlun sé tilbúin þegar fyrri áætlun fellur úr gildi. Næstu
endurskoðun skal því hefja árið 2024.