Umsókn
Dánarbætur
Sækja um
Lýsing
Dánarbætur greiðast dánarbúi látins sjóðfélaga og eru lagðar inn á bankareikning dánarbús eða bankareikning erfingja.
Umsókn þarf að fylgja:
Yfirlit um framvindu skipta, fæst hjá sýslumanni.
Umboð frá öðrum erfingjum til þess er tekur við greiðslunni ef leggja á inn á bankareikning erfingja.
Skilyrði
1. Vegna félagsmanns sem var á launaskrá við andlát:
Dánarbætur virks og greiðandi sjóðfélaga:
a) Eftir 6 mánaða samfellda aðild
Heimilt er að greiða dánarbætur til dánarbús sjóðfélaga sem fellur frá í starfi, er yngri en 70 ára og lætur eftir sig maka og börn. Eingreiddar dánarbætur til virks og greiðandi sjóðfélaga skulu eigi nema lægri fjárhæð en kr. 427.134 .- og greiðist hlutfallslega miðað við starfshlutfall, enda hafi iðgjöld verið greidd í a.m.k. 6 mánuði samfellt fyrir andlát hans.
b) Eftir 4 ára samfellda aðild
Dánarbætur virks og greiðandi sjóðfélaga sem greitt hefur verið af í a.m.k. 4 ár samfellt skulu vera að hámarki kr. 533.918 .- og greiðast hlutfallslega miðað við starfshlutfall. Fyrir hvern mánuð sem líður frá starfslokum til andláts sjóðfélaga samkvæmt þessum lið dragast frá kr. 16.169.-, þó ekki á fyrstu 6 mánuðunum.
c) Láti sjóðfélagi ekki eftir sig maka eða börn, er heimilt að greiða með sama hætti dánarbúi dánarbætur hafi aðrir erfingjar annast útför hins látna og gengist við eignum og skuldum hans.
2. Aðrar dánarbætur – Félagsmenn hættir störfum vegna aldurs/örorku
Við andlát manns sem, sem ekki er á vinnumarkaði en var sjóðfélagi við starfslok er stjórn sjóðsins heimilt að greiða til dánarbús hins látna hluta dánarbóta.
Skilyrði greiðslu er að hinn látni hafi verið sjóðfélagi samfellt síðustu 5 ár fyrir starfslok vegna aldurs/örorku, þ.e. var síðast félagsmaður Eflingar-stéttarfélags eða forvera þess.
Dánarbætur samvæmt þessum lið eru kr. 100.000,-