Umsókn

Dvöl á heilsustofnun

Heilsu- og forvarnarstyrkir

Sækja um

Smelltu á hnappinn til að sækja um á Mínum síðum.

Lýsing

Greitt er að hámarki kr. 2.000.- á dag í allt að 42 almanaksdaga á hverjum 12 mánuðum, þó aldrei meira en 50% af kostnaði.

Hægt er að sækja um styrk vegna dvalar í Heilsustofnun NLFÍ og vegna meðferðar í Bláa Lóninu. Með umsókn um styrk skal fylgja kvittun þar sem fram kemur kostnaður sjúklings og tímabil dvalar.

Skilyrði

  • Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
  • Umsækjandi þarf að vera í starfi og að greiða iðgjald til Eflingar þegar sótt er um styrk. Þó má sækja um í allt að þrjá mánuði eftir að félagsmaður hættir að greiða ef kvittun tekur til tímabils sem hann greiddi til Eflingar.
  • Þeir sem voru félagsmenn í Eflingu í a.m.k. 5 ár samfellt áður en þeir hættu vegna aldurs eða örorku, eiga rétt á styrkjum í allt að 24 mánuði eftir starfslok.
  • Styrkupphæðir miðast við félagsgjöld af lágmarkslaunum. Þeir sem eru í hlutastarfi og greiða lægra félagsgjald fá greitt miðað við hlutfall af þeirri upphæð.
  • Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.

Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 20. hvers mánaðar til að vera öruggur með að fá greitt mánaðamótin á eftir. Ef 20. lendir á helgi þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi á föstudegi þar á undan. Umsóknir sem berast á milli 21. og 31. hvers mánaðar eru greiddar út í kringum 10. næsta mánaðar.

Ath. sérstakur umsóknarfrestur er í desember.