Umsókn
Glasa- eða tæknifrjóvgun
Sækja um
Smelltu á hnappinn til að sækja um á mínum síðum.
Lýsing
Styrkur er veittur tvisvar. Greitt er allt að kr. 100.000, – fyrir hvort skipti en þó að hámarki 50% af kostnaði.
Skilyrði
- Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
- Umsækjandi þarf að vera í starfi og að greiða iðgjald til Eflingar þegar sótt er um styrk. Þó má sækja um í allt að þrjá mánuði eftir að félagsmaður hættir að greiða ef kvittun tekur til tímabils sem hann greiddi til Eflingar.
- Þeir sem voru félagsmenn í Eflingu í a.m.k. 5 ár samfellt áður en þeir hættu vegna aldurs eða örorku, eiga rétt á styrkjum í allt að 24 mánuði eftir starfslok.
- Styrkupphæðir miðast við félagsgjöld af lágmarkslaunum. Þeir sem eru í hlutastarfi og greiða lægra félagsgjald fá greitt miðað við hlutfall af þeirri upphæð.
- Kvittanir mega vera að hámarki 12 mánaða gamlar.
Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 20. hvers mánaðar til að vera öruggur með að fá greitt mánaðamótin á eftir. Ef 20. lendir á helgi þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi á föstudegi þar á undan. Umsóknir sem berast á milli 21. og 31. hvers mánaðar eru greiddar út í kringum 10. næsta mánaðar.
Ath. sérstakur umsóknarfrestur er í desember.