Umsókn
Sjúkradagpeningar
Sækja um
Smelltu á hnappinn til að sækja um á Mínum síðum
Lýsing
Greitt er 80% til 100% af meðallaunum síðastliðna 6 mánuði áður en sjóðfélagi varð launalaus vegna veikinda eða slyss, þó að ákveðnum hámarki. Greiðslutími er mismunandi eftir launagreiðendum en getur verið þrír til sex mánuðir.
Umsókn þarf að fylgja:
- Ljósrit af sjúkradagpeningavottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna. Sjá nánar reglur um læknisvottorð. Frumrit fylgir umsókn um dagpeninga til Sjúkratrygginga Íslands.
- Starfsvottorð frá atvinnurekanda þar sem fram kemur starfstími hans og starfshlutfall næstliðinna 6 mánaða og hvaða dag viðkomandi varð launalaus vegna veikinda/slyss og hve margir veikindadagar voru nýttir.
- Útfyllt eyðublað um nýtingu persónuafsláttar
Umsækjandi heimilar sjúkrasjóði að bera umsókn og læknisfræðileg gögn undir trúnaðarlækni sjóðsins. Í einhverjum tilvikum getur umsækjandi átt von á því að krafist verði ítarlegri gagna eða að umsækjandi sé kallaður í læknisfræðilegt mat hjá trúnaðarlækni. Sjúkrasjóður getur hafnað umsókn um sjúkradagpeninga á grundvelli mats trúnaðarlæknis.
Skilyrði
Félagsmaður getur átt rétt á dagpeningum úr sjúkrasjóði ef greitt var af honum til Sjúkrasjóðsins í a.m.k. þrjá síðustu mánuði áður en hann varð launalaus vegna veikinda eða slyss. Fullur réttur stofnast eftir 6 mánaða iðgjaldagreiðslur. Réttur til dagpeninga myndast eftir að samningsbundnum rétti til veikindalauna frá atvinnurekanda er lokið. Réttindi flytjast á milli félaga innan ASÍ. Nánari upplýsingar um sjúkradagpeninga má finna hér.
Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 20. hvers mánaðar til að vera öruggur með að fá greitt mánaðamótin á eftir. Ef 20. lendir á helgi þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi á föstudegi þar á undan. Umsóknir sem berast á milli 21. og 31. hvers mánaðar eru greiddar út í kringum 10. næsta mánaðar.
Ath. sérstakur umsóknarfrestur er í desember.