19. nóv Kl — 09:00

Á tímamótum – starfslokanámskeið (íslenska, nóv)

— Mímir, Höfðabakki 9, 110 Reykjavík — 19. nóv 2025

19. nóvember 2025, kl. 09.00-15.00

Ath! Kennsla fer fram í húsnæði Mímis, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík.

Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að sækja námskeið Eflingar þar sem farið er yfir hagnýtar upplýsingar varðandi tímamótin. Að hætta á vinnumarkaði þarf að undirbúa vel. Breytingin hefur mikil áhrif á líf fólks og er stórt skref að stíga. Með góðum undirbúningi er hægt að gera nýja hlutverkið í lífinu jákvætt.

Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar til að mynda um sjúkratryggingar, lífeyrisréttindi, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu og svara fyrirspurningum frá þátttakendum. Einnig verður fjallað um hvað er í boði í félagsstarfi og fræðslu fyrir fólk sem er komið á aldur.

Námskeiðið er haldið yfir á daginn frá kl. 09.00-15.00. Boðið verður upp á mat. Heimilt er að bjóða maka með.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Mími og er félagsmönnum að kostnaðarlausu. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Skráning á vefnum, sjá eyðublað hér fyrir neðan, eða hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500 eða með tölvupósti á netfangið felagsmal@efling.is

Skráning í Starfslokanámskeið (íslenska) 19. nóvember 2025
Fullt nafn :: Full name
Staðfesting á skráningu verður send á þetta netfang. / Registration confirmation will be sent to this email address.
Skrifið netfang aftur til að koma í veg fyrir innsláttarvillur :: Re-enter email to prevent typing errors
Kemur þú með maka? :: Will you bring your partner?