27. mar Kl — 18:00

Á tímamótum – starfslokanámskeið (pólska)

— Atburður liðinn — 27. mar 2025

ATH! Fullbókað!

27. mars 2025, kl. 18-21

Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að sækja námskeið Eflingar þar sem farið er yfir hagnýtar upplýsingar varðandi tímamótin. Að hætta á vinnumarkaði þarf að undirbúa vel. Breytingin hefur mikil áhrif á líf fólks og er stórt skref að stíga. Með góðum undirbúningi er hægt að gera nýja hlutverkið í lífinu jákvætt.

Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar til að mynda um sjúkratryggingar, lífeyrisréttindi, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu og svara fyrirspurningum frá þátttakendum. Einnig verður fjallað um hvað er í boði í félagsstarfi og fræðslu fyrir fólk sem er komið á aldur.

Námskeiðið er haldið 27. mars frá kl. 18-21. Boðið verður upp á mat. Heimilt er að bjóða maka með.

Kennsla fer fram í Fosshoteli Reykjavík við Þórunnartún 1, í salnum Gullfoss A og er félagsmönnum að kostnaðarlausu. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Mími.

Skráning á vefnum, sjá eyðublað hér fyrir neðan, eða hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500 eða með tölvupósti á netfangið felagsmal@efling.is