03. okt Kl — 18:00

Félagsfundur / Trúnaðarráðsfundur

— Atburður liðinn — 3. okt 2024

Stjórn Eflingar – stéttarfélags boðar til félagsfundar fimmtudaginn 3. október 2024. Fundurinn er samtímis fundur trúnaðarráðs.

Fundurinn verður haldinn í Félagsheimili Eflingar á 4. hæð í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hefst kl. 18.00.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

  1. Staðan í kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.
  2. Kynning á áformum stjórnvalda um afnám jöfnunarframlags vegna örorkubyrði lífeyrissjóða.
  3. Kynning á þátttöku Eflingar í norrænu samstarfi.
  4. Kosning aðalmanna og varamanna í uppstillingarnefnd.
  5. Listi þingfulltrúa Eflingar á þing ASÍ borinn upp til samþykkis.
  6. Önnur mál

Félagar eru beðnir að staðfesta komu með eyðublaðinu hér fyrir neðan, til að hægt sé að áætla fjölda fundargesta.

Please select a valid form