Mikill meirihluti félagsmanna Eflingar samþykkir samninginn
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Reykjavíkurborg er nú lokið og hafa atkvæði jafnframt verið talin.
Á kjörskrá voru 1922 manns og þar af greiddu 694 atkvæði.
659 sögðu já eða 95%
35 sögðu nei eða 5%
Samningurinn var því samþykktur af hálfu félagsmanna Eflingar með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.