Nýr kjarasamningur undirritaður við Samtök sjálfstæðra skóla
26. janúar sl. undirrituðu Samtök sjálfstæðra skóla sinn fyrsta kjarasamning fyrir hönd aðildarskóla sinna. Samningurinn nær til um 170 félagsmanna Eflingar sem starfa á leik- og grunnskólum samtakanna í Reykjavík.
Samtök sjálfstæðra skóla (SSSK) eru regnhlífarsamtök sjálfstæðra leik- og grunnskóla á Íslandi og eru á sínu fyrsta starfsári. Þau voru stofnuð 10. mars 2005 og er tilgangur samtakanna er að gæta hagsmuna sjálfstæðra skóla, efla samheldni þeirra, skapa vettvang til skoðanaskipta og vera í fyrirsvari fyrir sjálfstæða leik- og grunnskóla gagnvart opinberum aðilum.
Samningurinn tryggir aðstoðarfólki þessara skóla sambærileg kjör og kveðið er á um í nýjum samningi Reykjavíkurborgar við ófaglært starfsfólk á leikskólum á vegum borgarinnar. Ennfremur er kveðið á um í samningnum að aðilar muni skipa sérstaka samstarfsnefnd til að þróa áfram hinu góðu samvinnu þar sem jákvæð þróun í kjaramálum aðstoðarfólks í sjálfstæðum skólum verður í fyrirúmi.
Á næstu dögum mun starfsfólk Eflingar fara á leikskólana og kynna nýgerðan kjarasamning fyrir félagsmönnum sínum og mun hann samhliða vera borinn undir atkvæðagreiðslu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá samningaðila við undirritunina. Frá vinstri; Lovísa Hallgrímsdóttir, ritari stjórnar SSSK, Margrét Pála Ólafsdóttir, formaður SSSK, Sigurður Bessason, formaður Eflingar og Harpa Ólafsdóttir, formaður kjaramálasviðs Eflingar.