Nýr samningur kynntur hjá vinnustöðunum Ási og Bjarkarási
Fundurinn var haldinn á Grand Hótel og mættu um 70 manns. Þetta var fyrsti vinnustaðafundurinn vegna nýgerðra samninga um kjör og réttindi fatlaðra starfsmanna á vinnustöðum fatlaðra. Góður rómur var gerður að nýja samningnum og voru fundarmenn sammála um að hann væri mikið framfaraskref fyrir starfsmenn vinnustaðanna ásamt því að vera stórt skref í réttindabaráttu fatlaðra á vinnumarkaði.