Flóinn og Boðinn vilja samning til tveggja ára
Áherslan á kaupmátt og hækkun lægstu launa
Megináherslan verður á hækkun lægstu launa og kaupmáttaraukningu í komandi kjarasamningum, segir Sigurður Bessason, formaður samninganefndar Flóafélaganna og Boðans eftir fund með Samtökum atvinnulífsins í dag þar sem helstu stefnumið félaganna voru kynnt. Í gærkvöldi samþykkti aðalsamninganefnd félaganna almenna stefnumörkun þar sem gert er ráð fyrir að stjórnvöld tryggi stöðugleika og lækkandi verðbólgu til að launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti. Flóafélögin vilja semja til tveggja ára með traustum tryggingarákvæðum gagnvart verðbólgu og launum annarra.
Stéttarfélögin vilja tryggja umframleiðréttingu til þeirra hópa sem dregist hafa aftur úr á yfirstandandi samningstímabili, færa taxta að greiddu kaupi og tryggja þar með öryggisnetið.
Launafólk á almennum markaði á ekki eitt og sér að bera ábyrgð á stöðugleikanum. Ábyrg stefna stjórnvalda er varðar lækkun á verðbólgu og almennan stöðugleika er forsenda þess að launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti.
Áhersla verði lögð á að útrýma launamun kynjanna, en fram hefur komið að óútskýrður launamunur innan félaganna er ennþá fyrir hendi og þessum mun vilja stéttarfélögin útrýma með markvissum aðferðum í samstarfi við atvinnurekendur.
Unnið skal að því að stytta heildarvinnutímann á samningstímabilinu en fram hefur komið í viðhorfskönnun Flóafélaganna að launafólk leggur þunga áherslu á að stytta vinnutímann sem er allt of langur.
Félögin vilja ræða við Samtök atvinnurekenda um hvernig bæta megi veikinda-, slysa-, lífeyris- og örorkuréttindi á almennum markaði. Ákvæði um slysatryggingar verði teknar til heildarendurskoðunar og tryggingaupphæðir verði stórhækkaðar til samræmis við það sem best gerist í samningum hér á landi.
Tryggja ber stöðu starfsmenntasjóðanna með hækkun á framlagi til starfsmenntasjóða til að standa undir auknum kröfum um menntun launafólks.
Krafist er skýrra opnunarákvæða vegna verðbólgu og launahækkana annarra hópa. Aðeins þannig verður tryggt að svigrúm í atvinnulífinu komi til skipta fyrir allan almenning en ekki bara til útvalinna hópa. Almennt launafólk sættir sig ekki við að sitja eftir í launaþróun í þjóðfélaginu.
Umræða um samningstíma fari fram um leið og viðræður eiga sér stað um kaupliði. Stefnt verði að samningi til tveggja ára.