Starfsmannasamtalið, sjálfsstyrking og samskipti
námskeið fyrir Eflingarfélaga
Undirbúningur og framkoma í starfsmannaviðtölum hafa áhrif á niðurstöður starfsmannaviðtalsins, starfsframa og líðan í starfi. Fjallað er um mikilvægi þess að markmið með starfsmannaviðtölum séu skýr, hvernig sé best að standa að þeim og hvernig eðlilegt er að vinna með niðurstöður viðtalanna.
Þekking á eigin framkomu í mismunandi aðstæðum og að ná valdi á eigin hugsunum leiðir til árangursríkra samskipta. Hvaða þættir eru það sem leiða til baktals og eineltis? Fjallað er um samhengið milli sjálfstrausts og framkomu og áhrif þeirra í samskiptum við aðra.
Námskeiðið verður haldið dagana 29, 31 okt. og 5 nóv. Kl. 19 – 22. Þátttaka er Eflingarfélögum að kostnaðarlausu.
Skráning á námskeiðið er á skrifstofu Eflingar í síma 510-7500