Gleðileg Jól!
Efling styður Samhjálp
Ákveðið var að í stað þess að senda út jólakveðjur til samstarfsaðila Eflingar yrði andvirði jólakveðjanna notað til að bjóða nýja nágranna velkomna. Samhjálp opnaði í desember nýja kaffistofu í Borgartúni 1. Af því tilefni fóru Sigurður Bessason formaður og Sigurrós Kristinsdóttir 1 varaformaður Eflingar í heimsókn og færðu Heiðari Guðnasyni forstöðumanni Samhjálpar góða gjöf sem á örugglega eftir að nýtast vel yfir jólahátíðina. |