Baráttudagurinn 1. maí
Kröfuganga dagsins fer frá Hlemmi
Allir í kaffi í Kiwanishúsinu
Baráttudagurinn 1.maí lofar góðu með sólríku veðri hér í Reykjavík. Safnast verður saman framan við Hlemm um kl. 13.00 og gangan leggur af stað kl. 13.30.Gönguleiðin er um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu.
Útifundurinn hefst á Ingólfstorgi kl. 14.10
Að göngu lokinni fylla félagsmenn Eflingar Kiwanishúsið eins og jafnan á þessum degi.
1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík 2008
Dagskrá
Ávarp fundarstjóra
Fanney Friðriksdóttir, ritari Eflingar.
Ávarp
Georg Páll Skúlason, formaður Félags bókagerðarmanna.
Tónlist
Sprengjuhöllin.
Ávarp
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu.
Gamanmál
Gísli Einarsson, fréttamaður.
Ávarp
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
Tónlist
Sprengjuhöllin.
Fundarstjóri slítur fundi ,,Internationalen” sunginn. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika undir.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík
BSRB
Bandalag háskólamanna
Kennarasamband Íslands
Samband íslenskra framhaldsskólanema