Trúnaðarmenn Eflingar
Samningar með borginni undirbúnir
Trúnaðarmenn Eflingar-stéttarfélags hjá Reykjavíkurborg hittust á þremur fundum á föstud sl. þar sem farið var yfir helstu atriði er tengjast kjarasamningum félagsins við Reykjavíkurborg. Það voru starfsmenn leikskólanna, starfsmenn í umönnunarstörfum og síðan hjá framkvæmda- og umhverfissviði ásamt grunnskólum borgarinnar sem ræddu málin með formönnum og starfsmönnum félagsins. Viðræðuáætlun við borgina var undirrituð í síðustu viku þar sem fram kom að aðilar stefna að því að ljúka endurnýjun kjarasamninga fyrir lok október nk. Fram kom á fundum með trúnaðarmönnum að borgin hefur hafnað erindi Eflingar um að flýta gerð kjarasamninganna.