Efling styður Krabbameinsfélagið
Efling-stéttarfélag og Starfsafl sýndu hug sinn í verki í vikunni þegar Krabbameinsfélagið hóf baráttu fyrir kaupum á nýjum tæknibúnaði fyrir félagið með sölu bleiku slaufunnar. Starfsmenn settu upp bleiku slaufuna á skrifstofunum daginn sem átakið hófst til að sýna samstöðu með þessari mikilvægu söfnun Krabbameinsfélagsins.