Reykjavíkurborg og sveitarfélögin
Atkvæðagreiðslan á fullu
Kynningarfundir og atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um kjarasamning Eflingar við Reykjavíkurborg og sveitarfélögin í nágrenni borgarinnar. Félagsmenn hafa getað greitt atkvæði eftir kynningarfundina en auk þess verður hægt að kjósa á skrifstofu Eflingar frá þriðjudegi 9. desember til kl. 12.00 föstudaginn 12. desember.
Félagsmenn eru hvattir til að nýta rétt sinn og taka þátt í atkvæðagreiðslunni.