Fundað með starfsfólki á LSH
Leitum til heilbrigðisráðherra
– segir formaður Eflingar
Starfsfólki í ræstingu á LSH í Fossvogi hefur fundað um uppsagnarmál sín á undanförnum dögum og í vikunni var rætt um viðbrögð við ósveigjanlegum ákvörðunum stjórnar LSH. Formaður Eflingar og hagfræðingur félagsins voru á fundi með starfsfólkinu þegar þessi mynd var tekin á dögunum en stjórn spítalans hefur ekki orðið við réttmætum kröfum starfsmanna um að afturkalla uppsagnirnar. Formaður Eflingar segir að næsta skref sé að leita til heilbrigðisráðherra með málið.
Fundað með starfsfólki á LSH