Viðræður við hjúkrunarheimili
Enn í hnút
Því miður hefur lítið gerst í viðræðum SFH þ.e. Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu við heilbrigðisráðuneytið en eins og m.a. hefur komið fram hér á heimasíðunni hafa SFH enn ekki samþykkt að ganga frá launahækkunum á samskonar nótum og niðurstaða hefur orðið við aðra viðsemjendur félagsins.
Í fyrramálið, þ.e. föstudag kl. 11.00 verður haldinn fundur með trúnaðarmönnum Eflingar í samninganefndinni og í framhaldinu verður tekin afstaða til þess að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.