Efling heldur áfram starfi með fólki í atvinnuleit
Mikilvægast að finna leiðir til sjálfshjálpar
– segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar
Efling hefur í haust haldið áfram að funda með atvinnuleitendum eftir stutt hlé í sumar. Við höfum farið yfir það hvaða úrlausnir eru í boði hjá sjóðum félagsins og þau menntunarúrræði og annað sem Efling getur boðið upp á, námsráðgjöf og starfsendurhæfingu fyrir þá sem það þurfa en auðvitað kemur ekkert í stað atvinnunnar og það er mikilvægast af öllu að byggja upp atvinnuna á ný, segir Sigurrós Kristinsdóttir í samtali við Eflingarblaðið.
Sigurrós er í stýrihópi velferðarvaktarinnar þar sem fylgst er rækilega með öllum því sem er að gerast í afleiðingum af hruni atvinnulífsins. Það hjálpaði okkur ekki þegar við misstum atvinnuleysistryggingarnar frá okkur sem nú eru alfarið í höndum Vinnumálastofnunar. Við það rofnuðu nokkuð tengslin á milli stéttarfélaga og félagsmannanna þeirra sem eru í atvinnuleit. En við höfum frá síðasta ári brugðist þannig við að hafa markvisst samband við félagsmenn okkar sem eru í atvinnuleit og þeim boðið að koma í spjall og upplýsingafundi hjá félaginu.
Á fundunum hefur verið farið yfir hvað er í boði hjá félaginu og aðra þá þjónustu og úrræði í samfélaginu og má nefna ýmsa styrki úr sjúkrasjóðnum eins og fræðslusjóðum félagsins jafnframt sem í boði er ýmiss námsúrræði, aðstoð við ferilsskrá, viðtöl við námsráðgjafa, starfshæfingarráðgjafa og að sjálfsögðu eru þjónustufulltrúar félagsins alltaf til staðar.
Einnig hefur verið boðið upp á kynnisferð í Hlutverkasetrið og Rauðakrosshúsið og starfsemin þar kynnt. Atvinnuleitendur hafa verið mjög ánægðir með þetta framtak félagsins og hafa ýmis mál verið rædd á fundunum og mörg sjónarmið komið fram og oft skapast miklar umræður. Einnig hefur verið kannaður vilji til námskeiðahalds eða annarra úrræða sem félagið hefur möguleika á að bjóða upp á. Margir hafa í framhaldi farið og nýtt sér þau námsúrræði og námskeið sem í boði eru og pantað tíma hjá náms- og starfsráðgjafanum, sótt um styrki í fræðslusjóði og sjúkrasjóði.
Sjálfshjálpin er mikilvægust
Það eru fjölmargir aðilar sem eru að aðstoða atvinnuleitendur og ljóst að öryggisnetið virkar hér á landi en megum ekki gleyma því að engir matarpokar eða frítt í sund eða heilsustyrkir leysi mál þessa hóps til langframa. Mikilvægast er að með aðstoðinni felist hjálp til sjálfshjálpar, varðandi atvinnu, menntun, fyrirbyggjandi heilugæslu eða annað sem byggir upp einstaklingana. Mikilvægast af öllu er að byggja upp atvinnuna á ný, segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar að lokum.