Samningur Reykjavíkurborgar samþykktur
Með miklum meirihluta
Samningur Reykjavíkurborgar var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða í atkvæðagreiðslu félaganna.
Á kjörskrá voru 1.817. Atkvæði greiddu 524 eða um 28,8%. Já sögðu 460 eða 88 % þeirra sem afstöðu tóku. Nei sögðu 61 eða 12%. Ógildir og auðir seðlar voru 3 eða 0 %.
Atkvæðagreiðslan stóð frá því kjörseðlar voru sendir út til félagsmanna þann 31. maí sl. og lauk kl. 12.00 í dag.
Niðurstaðan hefur verið kynnt Reykjavíkurborg og hefur því samningurinn tekið gildi.