Nýr kjarasamingur Eflingar og VSFK við sveitarfélögin
Efling og VSFK hafa undirritað nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Meginatriði hans fara hér á eftir. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst í næstu viku um leið og kjörgögn og kynningarbæklingur hafa verið send félagsmönnum. Atkvæðagreiðslu lýkur 19. júlí nk.
Aðalatriði samningsins:
• Samningurinn gildir frá 1. maí 2011 til 30. júní 2014
• Ný launatafla tekur gildi frá 1. júní 2011
• Launataxtar hækka um 16,9% til 21,09% en þó að lágmarki um 34.000 kr. á samningstímanum
• Hækkun orlofsuppbótar er 10.200 kr. og verður 36.000 kr. árið 2011
• Desemberuppbót árið 2011 verður 75.500 kr
• Nýtt launakerfi í tímamældri ákvæðisvinnu í ræstingum
• Við samþykkt kjarasamningsins greiðist sérstök eingreiðsla 50.000 kr. hverjum starfsmanni í fullu starfi sem er við störf í maí og miðast greiðslan við fullt starf í mánuðunum mars-maí. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
• Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu 25.000 kr. miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall.
• Lágmarkslaun verða fyrir fullt starf:
Frá 1. júní 2011 196.708 Frá 1. mars 2012 203.593
Frá 1. mars 2013 211.941 Frá 1. mars 2014 219.799
Eftirtalin sveitarfélög eru á samningssvæði Eflingar-stéttarfélags og VSFK:
Hveragerðisbær Kópavogsbær Mosfellsbær Reykjanesbær Seltjarnarnesbær
Sveitarfélagið Garður Sveitarfélagið Vogar Sveitarfélagið Ölfus