Samningur við Samband sveitarfélaga
Samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta
Talningu er lokið í atkvæðagreiðslu um kjarasamning Eflingar og VSFK við Samband Íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Alls voru á kjörskrá 504. Af þeim greiddu 119 atkvæði eða 23.6%. 108 samþykktu samninginn eða 90.7%. Nei sögðu 11 eða 9.3%.
Niðurstaðan hefur verið tilkynnt Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Ríkissáttasemjara.