Faghópur félagsliða
Fræðslufundur
Faghópur félagsliða í Eflingu-stéttarfélagi verður með fræðslufund þriðjudaginn, 8. nóvember 2011. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Eflingar, Sætúni 1 á 4. hæð og hefst kl. 18.
Dagskrá fundarins:
• Uppvinnsla heilabilunar í heilsugæslu. Gríma Huld Blængsdóttir, heilsugæslulæknir á Heilsugæslunni Mosfellsbæ flytur erindi um mismunandi tegundir heilabilunar og hvernig á að nálgast vandamálið í heilsugæslu.
• Hvernig er nám- og starfsumhverfi félagsliða í Danmörku? Sagt verður frá nýafstaðinni námsferð félagsliðanema af erlendum uppruna til Danmerkur
• Önnur mál
Boðið verður upp á léttan kvöldverð
Mætum vel og stundvíslega !
Faghópur Félagsliða í Eflingu-stéttarfélagi