Viðræður um forsendur kjarasamninga
– Niðurstöðu að vænta 20. janúar
Fyrirspurnir eru þegar farnar að berast Eflingu um framhald núgildandi kjarasamninga. Þessa dagana standa einmitt yfir viðræður meðal aðildarfélaga ASÍ um framhald kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Gert er ráð fyrir því að sameiginleg forsendunefnd ASÍ og SA skili niðurstöðu ekki síðar en 20. janúar nk. Samninganefnd Flóabandalagsins þ.e. Efling, Hlíf í Hafnarfirði og VSKF í Keflavík fundar 18. janúar næst komandi. Það verður því ekki fyrr en í lok þeirra viðræðna sem að niðurstöðu verður að vænta hvernig fer með þær launabreytingar sem taka eiga gildi á almennum markaði 1. febrúar 2012.
Líklegt er að þær niðurstöður verði einnig leiðandi fyrir aðra kjarasamninga svo sem ríki, hjúkrunarheimili og sveitarfélögin en launabreytingar þar eiga að taka gildi 1. mars næst komandi.