Námskeið hjá Eflingu
Að skera út grænmeti
Miðvikudaginn 17. október hélt Efling stéttarfélag eitt að mörgum kvöldnámskeiðum fyrir sína félagsmenn í samstarfi við Mími símenntun. Kennt var hvernig skera má út grænmetisblóm en kennari var Chidapha Kruesang sem er taílensk. Mikil ánægja var með námskeiðið. Þátttakendur komust að því að útskurðurinn þarfnast þjálfunar og vildu meina að sinn afrakstur væri stórslys samanborið við blóm kennarans.