Þingmenn krafðir svara
Opinn fundur á Hótel Selfossi 9. október
Stéttarfélögin á Suðurlandi boða til opins fundar með þingmönnum Suðurkjördæmis. Leitað verður eftir afstöðu þingmanna til ýmissa mála sem efst eru á baugi. Má þar á meðal nefna atvinnumál í kjördæminu, fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir, samgöngumál og löggæslumál.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi þriðjudaginn 09. október kl. 20.00. Fundarstjóri verður Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautarskólans á Suðurlandi.
Stéttarfélögin hvetja sunnlendinga til að nota tækifærið, kynna sér afstöðu þingmanna suðurkjördæmis og krefja þá svara beint og milliliðalaust.
Báran, stéttarfélag
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi
Verslunarmannafélag Suðurlands
Félag iðn- og tæknigreina
Verkalýðsfélag Suðurlands
Efling, stéttarfélag