Faghópar félags- og leikskólaliða
Sameiginlegur fræðslufundur
Faghópur leikskólaliða og faghópur félagsliða í Eflingu-stéttarfélagi héldu sameiginlegan fræðslufund þann 13. nóvember síðastliðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem árlegur fræðslufundur faghópanna er haldinn sameiginlega. Fundurinn var vel sóttur og voru báðir hópar ánægðir fyrirkomulagið.
Margrét Gunnarsdóttir sérfræðingur á starfsendurhæfingarsviði VIRK og Svava Jónsdóttir sviðsstjóri á fyrirtækjasviði VIRK fluttu fyrirlesturinn ,,Velferð og vinna – kynning á þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs’’. Þá mætti Elva Dögg Gunnarsdóttir og var með uppistand.
Fundargerð og kynningu VIRK má nálgast á síðu faghóps félagsliða innan Eflingar og síðu faghóps leikskólaliða innan Eflingar.