Félagsmenn í atvinnuleit
Fundir í desember
Í desember býður Efling stéttarfélag félagsmönnum í atvinnuleit upp á morgunfundi með kaffiveitingum þar sem kynnt eru réttindi félagsmanna, létt spjall ásamt fræðslu. Fyrirlesari er Helena Jónsdóttir, sálfræðingur og eru erindin eftirfarandi: Hugræn atferlismeðferð: Breytt hugarfar, bætt líðan, Öryggi i samskiptum: Hvernig efli ég styrkleika mína, Virkni í atvinnuleit: Algengar hindranir og mögulegar lausnir.
Fundirnir verða hjá Eflingu stéttarfélagi, Sætún 1, 105 Reykjavík, 4 hæð eftirfarandi daga:
Þriðjudaginn 4. desember kl. 10.30
Þriðjudaginn 11. desember kl. 10.30
Fimmtudaginn 13. desember kl. 10.30
Athugið að mikilvægt er að skrá sig á hvern fyrirlestur í síma 510 7500 eða senda tölvupóst á fjola@efling.is eða elink@efling.is í síðasta lagi á hádegi deginum áður.