Framboðsfrestur til trúnaðarráðs
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags auglýsir framboðsfrest vegna kosningar trúnaðarráðs félagsins fyrir tímabilið 1. janúar 2013 til 31.12.2014.
Tillögur skulu vera um 115 trúnaðarráðsmenn til tveggja ára samkvæmt 15. gr. laga félagsins.
Listi uppstillingarnefndar, stjórnar og trúnaðarráðs liggur frammi á skrifstofu félagsins frá og með föstudeginum 14. desember 2012.
Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 21. desember nk.
Lista skulu fylgja meðmæli 120 félagsmanna.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags