Trúnaðarmenn í heimsókn
Líflegur morgunverðafundur með trúnaðarmönnum
Starfsmenn Eflingar settust á dögunum niður með trúnaðarmönnum sem luku Trúnaðarmannanámskeiði I á árinu 2012. Farið var vítt og breytt í umræðu um stöðu trúnaðarmannsins og reynslu þeirra á þeim tíma sem hafði liðið frá því þau hittust síðast. Harpa Ólafsdóttir sviðsstjóri Kjaramálasviðs fór síðan yfir stöðu kjarasamninga og hvað er framundan.