Eflingarkaffi eldri félagsmanna
Mikil gleði í Gullhömrum
Þarna hittust margir vinir
-segir Sigurrós Kristinsdóttir
Það er einmitt það skemmtilega við þessa árlegu stund okkar að hér hittast sannarlega margir vinir, sagði Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður við félagsmenn Eflingar í árlegu kaffisamstæti á sunnudaginn var. Þetta er árstími sem við á Eflingu hlökkum alltaf til þegar við förum að afgreiða miðana á kaffi eldri félagsmanna. Við höfum verið afskaplega ánægð með alla aðstöðu hér í Gullhömrum og það er alltaf mikil gleði að halda árlega hátíð okkar hér í þessum flottu veislusölum í Grafarholtinu, sagði hún.
Hið árlega kaffisamsæti eldri félagmanna Eflingar var haldið í Gullhömrum í Grafarholti sunnudaginn 10.mars sl. Boðið var upp á glæsilegt kaffihlaðborð og frábæra þjónust við þá fjölmörgu félagsmenn Eflingar sem mættu á staðinn.
Helgi Björnsson tók lagið við góðar undirtektir og síðan var slegið upp balli þar sem Þorgils Björgvinsson og Níels Ragnarsson spiluðu fyrir dansi.
Hátt í átta hundruð félagsmenn mættu og áttu góða stund saman.