Laust á námskeið I
Trúnaðarmenn
Enn eru laus pláss á trúnaðarmannanámskeið I sem verður 18. – 22. nóvember 2013. Á námskeiðinu er farið í starf og hlutverk trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og samningum ásamt því sem farið er í starfsemi stéttarfélaga, hlutverk þeirra og viðfangsefni.
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 11. nóvember.