Sigríður Ólafsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sjúkrasjóða hjá Eflingu-stéttarfélagi.
Hún hefur starfað hjá Eflingu með hléum síðan 2001 og hefur langa reynslu af starfi hjá Eflingu-stéttarfélagi, nú síðustu árin sem aðstoðarmaður Guðrúnar Óladóttur, sviðsstjóra.
Sigríður var ráðin í starfið frá og með 1. mars 2015. Við bjóðum hana velkomna til starfa sem sviðsstjóri.